Search
Close this search box.

Um okkur

Félag ábyrgra hundaeigenda var stofnað 18. janúar 2012 af nokkrum hundaeigendum sem höfðu áhuga á að bæta stöðu hundaeigenda og hunda í borginni. Félagið er opið öllum. Tilgangur félagsins er að vera málsvari hundaeigenda og hunda með það að markmiði að stuðla að ábyrgu hundahaldi.

Framtíðarsýn og markmið

  • Að á Íslandi skapist hundamenning í líkingu við það sem fyrirfinnst í nágrannalöndunum
  • Að eiga gott samstarf við sveitarfélög varðandi mál er tengjast hundahaldi
  • Að hundaeigendur sýni ábyrgð í hvívetna
  • Að hundagerði fyrirfinnist í öllum hverfum borgarinnar
  • Að auðvelda hundaeigendum að ferðast með hunda sína
  • Að tekið sé tillit til andlegra og líkamlegra þarfa hunda í stefnumótun yfirvalda varðandi málefni hunda

Hvernig ætlum við að ná markmiðum okkar?

  • Virkja sem flesta hundaeigendur í þágu málefnisins
  • Setja á laggirnar nefndir sem vinna að settum markmiðum félagsins
  • Auka samvinnu við yfirvöld og koma sjónarmiðum hundaeigenda á framfæri.